Sagan af Gípu

Númer 7471
Skráningarmaður ÞEG
Heiti Sagan af Gípu
Heimild Ólafur Davíðsson IV (1980), 290
Heimildamaður Gunnlaugur Þorsteinsson
Kyn kk
Heimili Ey., Skipalón í Glæsibæjarhreppi
Sendandi Ólafur Davíðsson, náttúrufræðingur og þjóðsagnasafnandi
Heimili sendanda Ey., Hof í Hörgárdal
Skráningarár 1899
Mlatminúmer 
Form Sögn
Sögustaður 
Tímasetningar Í morgun
Efnisorð Ævintýri
Efni Einu sinni voru karl og kerling í koti. Þau áttu dóttur er Gípa hét og þótti hún matfrek í meira lagi. Þau áttu kú, sem hét Kreppilhyrna. Einu sinni áður en Gípa fór að smala, át hún úr askinum sínum og askinn með, karl og kerlingu, kúna og kotið. Svo hélt hún af stað og mætti tófu sem hét Refur rennandi. Hún spurði Gípu hvað hún hafði étið í morgun. Gípa sagði: "Eg át úr askinum mínum og aksinn með, karl og kerlinu, kúna Kreppilhyrnu og kotið með, og eins mun eg gera við þig, Refur rennandi." Svo gleypti hún refinn. Því næst mætti hún Birni betlandi og fór það á sömu leið. Skömmu seinna kom hún að sjó og hitti þar menn á skipi. Þeir spurðu hana að heiti og sagði hún það. Þeir spurðu hvað hún hefði etið í morgun og sagði hún það. Síðan gleypti hún skipið með mönnunum í. Skömmu seinna sprakk Gípa og komu allt og allir heilir úr henni. Gípa var saumuð saman og lifði vel og lengi eftir þetta.
Vísur 
Athugasemdir "Eftir sögn Gunnlaugs Þorsteinssonar á Skipalóni 1899. Saga þessi er áður prentuð í Íslenzkum ævintýrum með myndum 1. Akureyri 1931. - Þ.M.J." Þessi sögn er í kaflanum "Fjarstæðusögur." Fann ekki fleiri efnisorð. Ég setti inn efniso. "Ævintýri" við sögurnar í þessum kafla.
Not 

Textaleit

Veljið leitartegund hér að neðan, sláið inn leitartexta og smellið á "Leita"

Leitartegund:
Leitartexti:

Staða grunnsins

Fjöldi færslna í grunninum:
10408